Færsluflokkur: Viðskipti og efnahagsmál
Golf greining
12.3.2007 | 16:52
PGA European Tour er á leið til Austurlanda fjær, en mun ekki stoppa í N-Kóreu og er það miður, því þar býr einn fremsti golfari heims, að eigin sögn, Kim Jong-il. Kim fór hringinn á Pyongyang golfvellinum á 38 undir pari. Í fylgd lífvarða sinna, sem skrifuðu upp á skor-kortið, þá náði hann erni strax á fyrstu holu. Hann náði ás á næstu holu, þann fyrsta af 5, og þegar honum var tilkynnt að hann hefði slegið metið um 25 högg, þá tilkynnti hann, að hann leggði golfkylfuna á hilluna og sagðist þurfa meiri og erfiðari áskoranir, bæði andlega og líkamlega.
Líkingin er íslenska hagkerfið og greiningardeildir bankanna, þar sem íslenska hagkerfið er Kim Jong-il og greiningardeildir bankanna lífverðirnir.
Ég er áskrifandi að fréttabréfum greiningadeildanna, sem eru mér að kostnaðalausu og ég er mjög þakklátur fyrir það, en það er eins og þau séu öll skrifuð af sama aðilanum, sem lofar hagkerfið og telur áhyggjur af stöðu mála ávallt ofmetnar. Samkvæmt greiningadeildunum, er það venjulega svo, að útlendingar skilji ekki íslenska hagkerfið og þar af leiðandi sé lítið mark takandi á gagnrýni á íslenska hagkerfið af utanaðkomandi greiningardeildum. Þó svo að "visst" ójafnvægi sé í hagkerfinu, þá sé það ekkert til að hafa of miklar áhyggjur af, skuldir séu ofmetnar og eignir vanmetnar?? Oft finnst mér þetta tal greiningadeildanna sýna litla skynsemi og reynslu. Greiningadeildirnar hafa nú a.m.k þrisvar sinnum á síðastliðnum þremur mánuðum, spáð of lítilli hækkun verðlags, en virðast samt ekki gera tilraun til að leiðrétta þessa spáskekkju í verðbólgu líkönum sínum.
Viðskipti og efnahagsmál | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Svo skal böl bæta..........
15.2.2007 | 13:43
Megas er mjög hagfræði þenkjandi (líkt og Steinn Steinarr), enda orti hann:
Launaþrællinn hnígur niður með ægilegan sting og lánskjaravísitalan hverfur út við sjóndeildarhring..............................
Ég veit ekki betur en það sé sýnt og sannað, að svo skal böl bæta með því að benda á eitthvað annað
( Megas: Paradísarfuglinn-Svo skal böl bæta)
Hvað ef bankarnir myndu ekki hækka vexti, þegar Seðlabankinn hækkar stýrivexti sína? Það myndi ganga á hagnað bankanna, að einhverju leyti, en þar sem bankarnir fjármagna sig að mestu leyti á erlendum mörkuðum, ekki innlendum lánamarkaði, þá yrðu áhrifin á hagnaðinn mun minni en ella. Seðlabankinn hefur fleiri stjórntæki til að knýja fram vaxtabreytingar á fjármálamarkaði, en teygni stjórntækjanna getur verið mismunandi og í flestum tilfellum hefur dregið úr áhrifamætti stjórntækjanna eftir því sem aðgangur á fjármálamarkaði varð opnari og auðveldari. Hvað ef það væri virk samkeppni á innlenda markaðinum, í stað fákeppni? Hvað ef bankarnir myndu hækka innlánsvexti sína, mun meira en útlánsvexti sína og þannig hvetja til aukins sparnaðar? Hvað ef vaxtamunur (álagning) bankanna myndi minnka? Já, hvað ef? Ætli það gæti aðeins gerst í hagfræðilegum skáldskap Megasar?Hvað ef fyrirtæki, t.d. í matvælaverslun, myndu hækka verð og slá þeim tilgangi fram að með hækkuninni væru þau, að slá á þenslu í þjóðfélaginu? Bankarnir geta auðvitað einfaldlega dregið úr útlánum, án þess að hækka vexti, eða hvað? En er það ekki líkt og að segja þeim, að selja ekki sem mest, á sem hæsta verði?
Ekki við viðskiptabanka að sakast þótt vextir séu háir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og efnahagsmál | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kýpur og evran
14.2.2007 | 08:34
Kýpur sækir um aðild að evrusvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og efnahagsmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Óðaverðbólga?
10.2.2007 | 08:55
Segir íslensku krónuna munu hverfa með tímanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og efnahagsmál | Breytt 12.2.2007 kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Styx
9.2.2007 | 14:02
Írar með 378 milljónir evra undir koddanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og efnahagsmál | Breytt 12.2.2007 kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gengið sem hagstjórnartæki.
8.2.2007 | 16:14
Davíð: Mesta furða hvað krónan hefur dugað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og efnahagsmál | Breytt 12.2.2007 kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kaaaaalt.
8.2.2007 | 13:41
Mikið svakalega er kalt hér í Englandi. Þegar ég kom í skólann í morgun, þá var tilkynning frá vini mínum, sem er frá ríki við miðbaug, að hann aflýsi öllum kennslustundum í dag vegna veðurs. Færi ekki út.
Annars klæða Bretar sig aldrei eftir veðri, þeir klæða sig eftir árstíðum. Oft verður maður vitni að því, að þeir léttklæðist um leið og dagatalið segir SUMAR, alveg sama hvernig veðrið er og þeir halda það út, allir í T-bol.
Talið er að veðurfarið kosti breska hagkerfið, allt að 55 milljörðum íslenskra króna.
mms://telegraph.wmod.llnwd.net/a689/o1/TELE_SNOW_NEW_08.wmv
Viðskipti og efnahagsmál | Breytt 12.2.2007 kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er Ísland best í heimi?
8.2.2007 | 06:46
Er Ísland best í heimi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og efnahagsmál | Breytt 12.2.2007 kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Uppgjöf á krónunni?
7.2.2007 | 15:45
Þetta þarf alls ekki að vera nein uppgjöf. Þau fyrirtæki sem um ræðir eru útrásar fyrirtæki (bankar meðtaldir), sem hafa oft stærstan hluta tekna sinna í erlendri mynt. Jafnframt, eru þau að selja hluti í sjálfum sér, á erlendum fjármálamörkuðum og fyrirtækin setja upp verðið á sjálfum sér í erlendri mynt, líkt og er gert þegar íslensk fyrirtæki selja vörur á erlendum markaði. Með þessu móti minnka (eyða) þau gengisáhættu erlendra lánveitenda og fjárfesta.
Viðskipti og efnahagsmál | Breytt 12.2.2007 kl. 08:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Viðskiptaþing: Evran og hvalveiðar
7.2.2007 | 14:31
Segir ástand gengismála óviðunandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og efnahagsmál | Breytt 12.2.2007 kl. 08:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)