Golf greining

PGA European Tour er á leið til Austurlanda fjær, en mun ekki stoppa í N-Kóreu og er það miður, því þar býr einn fremsti golfari heims, að eigin sögn, Kim Jong-il.  Kim fór hringinn á Pyongyang golfvellinum á 38 undir pari.  Í fylgd lífvarða sinna, sem skrifuðu upp á skor-kortið, þá náði hann erni strax á fyrstu holu.  Hann náði ás á næstu holu, þann fyrsta af 5, og þegar honum var tilkynnt að hann hefði slegið metið um 25 högg, þá tilkynnti hann, að hann leggði golfkylfuna á hilluna og sagðist þurfa meiri og erfiðari áskoranir, bæði andlega og líkamlega.

Líkingin er íslenska hagkerfið og greiningardeildir bankanna, þar sem íslenska hagkerfið er Kim Jong-il og greiningardeildir bankanna lífverðirnir. 

Ég er áskrifandi að fréttabréfum greiningadeildanna, sem eru mér að kostnaðalausu og ég er mjög þakklátur fyrir það, en það er eins og þau séu öll skrifuð af sama aðilanum, sem lofar hagkerfið og telur áhyggjur af stöðu mála ávallt ofmetnar.  Samkvæmt greiningadeildunum, er það venjulega svo, að útlendingar skilji ekki íslenska hagkerfið og þar af leiðandi sé lítið mark takandi á gagnrýni á íslenska hagkerfið af utanaðkomandi greiningardeildum.  Þó svo að "visst" ójafnvægi sé í hagkerfinu, þá sé það ekkert til að hafa of miklar áhyggjur af, skuldir séu ofmetnar og eignir vanmetnar??  Oft finnst mér þetta tal greiningadeildanna sýna litla skynsemi og reynslu.  Greiningadeildirnar hafa nú a.m.k þrisvar sinnum á síðastliðnum þremur mánuðum, spáð of lítilli hækkun verðlags, en virðast samt ekki gera tilraun til að leiðrétta þessa spáskekkju í verðbólgu líkönum sínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband